Björg

Heimur Bjargar

16.03.2007 18:37:25 / bjorgk

Mágus VS Orator

jæja þetta byrjaði klukkan 1 þá kepptum við stelpurnar í fótbolta og auðvita vann mágus 9-1:D og skoraði ég 2 mörk. Ég hef örugglega verið mjög pirrandi þar sem ég setti hverja á fætur annari í gófið hehe þar sem ég er þekkt fyrir að vera hörð en lítið hægt að gera í því nema ein klikk gella í orator hljóp mig uppi og hrinti mér ég var nú ekki að sætta mig við það :evil:og ætlaði að tækla hana en ákvað að láta skynsemina ráða og hefna min ekki. Strákarnir voru samt ömurlegir og unnu ekki neytt hehe :frown:en við stelpurnar unnum allt nema handboltann:evil: Svo var ég látin keppa með stjórn Mágusar og rúlluðum við því líka upp :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 09:29:12 / bjorgk

loksins helgi :)

jæja í kvöld eftir æfingu verður skellt sér á Hverfis þar sem Mágus og Orator keppa í ræðum og spurningaleik ;)

Auðvita vinnur Mágus ekki spurning svo detta margir örugglega í það seinna um kvöldið:D Það verður nú ekkert djamm á mér þar sem það er leikur á laugardag í Lengjubikarnum á Akureyri :frown: og við þurfum að fara þanngað í rútu kl 7 um morguninn:( Þoli ekki að ferðast svona langt í rútu og svona snemma eins gott að ég sofi lengi lengi. Það kemur ekkert annað til greina nema sigur :haha: Svo er ég geggjað ánægð með að Arsenal vann algjör snild hehe

Áfram FH og Mágus.....

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 16:36:05 / bjorgk

Árshátíð Mágusar

Það var byrjað á því að fara í greiðslu til Kristínar á adiago stofunni sem hún var að opna og málað sig eða allavega reynt það:haha:Svo klukkan hálf 5 var lagt af stað í nýju stúdenta íbúðirnar á LIndargötunni þar sem Þóra á heima þar heltum við í okkur til 6 og tókum þá leigubíl í félagsheimili seltjarnarness og Raggi orðinn vel ölvaður 8|og vesen að koma honum í taxann hehe. sem var mitt hlutverk. Þegar við komum í félagsheimilið þá beið okkar fordrykkur sem við vorum ekki lengi að hella í okkur. Það var búið að taka frá eitt besta borðið fyrir okkur þannig við vorum ekkert að stressa okkur á tímanum.8) Matseðillinn var mjög góður eða í forétt fengum við lax og eitthvað sem ég borðaði örugglega þó að ég borða ekkki lax og svo var aðalrétturinn 3 þættur eða innpökkuð nautafile og rósmarín lambakjöt og appelsínu gljáandi kjúlli mmmmm svo var eftirétturinn eitthvað sem ég man ekki en ég borðaði það örugglega líka hehe. En hann Raggi greyið drapst á borðinnu fyrir matinn þannig hann borðaði langt á eftir okkur hehe og vaknaði hress og edrú þegar við hin vorum orðin full "flott þetta" enda kallinn vanur að panta sér 3 faldan vodga í appelsínusafa. Á meðan við vorum að borða þá voru Simmi og Jói sem voru veislustjórar að halda uppistand og svo lobbi kennari á eftir þeim sem var mjög fyndið og skemmtilegt. Svo kom hljómasveitinn Von sem spilaði fyrir okkur fullt af skemmtilegum lögum enda fór Þóra upp á svið og söng með þeim og það gerðu líka fleiri. Svo um 2 var ballið búið og við Þóra ákváðum að fara niður í bæ og enduðum á sólon þar sem margir mágusar meðlimir voru að hafa það gaman :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Gamalt blogg
Hversu vel eigiði saman